Jafnrétti í skólum
Það læra börnin sem fyrir þeim er haft
Félags- og tryggingamálaráðuneytið, menntamálaráðuneytið, Jafnréttisstofa, Jafnréttisráð, Reykjavíkurborg, Hafnarfjarðarkaupstaður, Akureyrarkaupstaður, Kópavogsbær, Mosfellsbær og fleiri sveitarfélög vilja leggja sitt lóð á vogarskálarnar til að ungt fólk fái tækifæri til að ákvarða framtíð sína og geti valið sér nám og störf óháð kyni. Þessir aðilar hafa skrifað undir samstarfssamning um þróunarverkefni sem miðar að því að auka og efla jafnréttis- og kynjasjónarmið í skólastarfi, þ.e. í leikskólum og grunnskólum. Stýrihópur sem í eiga sæti fulltrúar frá framangreindum aðilum hefur séð um undirbúning og skipulag verkefnisins og hefur Arnfríður Aðalsteinsdóttir verið ráðin verkefnisstjóri til eins árs.
Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á heimasíðu verkefnisins
www.jafnrettiiskolum.is
Kynningarbæklingurinn Jafnrétti í skólum (PDF, 196KB)
Samstarfsaðilar
Félags- og tryggingamálaráðuneytið
Styrktaraðilar
Sparisjóður Norðurlands
Hafa samband
Arnfríður Aðalsteinsdóttir er verkefnisstjóri verkefnisins og hefur aðsetur á Jafnréttisstofu
Borgum v/Norðurslóð, 600 Akureyri, sími 460 6200
Netfang: arnfridur (hjá) jafnretti.is

